|
 

25. jan. Í dag byrjaði
Emilíana B. Andrésdóttir hjá okkur í
starfsnámi. Hún stundar nám í Lundarskóla en verður hjá okkur á
miðvikudags- og föstudagsmorgnum þessa önn frá 8:15 - 13:00.
Emilíana verður á Mána
undir handleiðslu Hafdísar. Við bjóðum hana hjartanlega
velkomna til okkar á Pálmholt.
|
Emilíana |
24. jan.
Nú er búið að setja inn á síðuna kennsluáætlun
vorannar fyrir Regnboga. Byrjað var að kenna
yfirreglurnar fjórar núna í janúar og svo er bætt við
smám saman fram í maí. Innlögnin hefur gengið ljómandi
vel það sem af er og börnin voða ánægð með Bros-orminn
sinn sem vex og dafnar samhliða því sem þau tileinka sér
að nota innirödd, fara eftir fyrirmælum, ganga vel um og
gæta handa sinna og fóta :-)
Sjá
hér
Á Sól og Mána ætlum við að leggja megináherslu á
yfirreglurnar fjórar á vorönn ásamt því að vinna
markvissar með lausnaleit og leggja áherslu á
heimspekilega gagnrýna umræðu um það sem snýr að
siðferðisvitund, eigin tilfinningum og annarra og efla
þannig félagsfærni barnanna og hæfileikann að setja sig
í spor annarra. Ekki er áætlað að vera með sérstaka SMT
umbun á önninni eins og verið hefur heldur vinna enn
meira með félagslegu hvatninguna.
20. jan.
Í tilefni Bóndadags buðu börnin feðrum sínum í
pabbakaffi og húsið fylltist af hressum og kátum pöbbum.
Þeir feður sem ekki áttu heimangengt útveguðu sér
staðgengil og því bættust nokkrir sprækir afar, frændur
og mæður í hópinn. Boðið var upp á síld og rúgbrauð,
salat og kex auk þess sem börnin tóku lagið og
fullorðnir og börn hjálpuðust að við að útbúa kórónur
fyrir þorrablótið okkar sem verður haldið næsta
föstudag. Kærar þakkir fyrir ánægjulega stund í
leikskólanum.
19. jan.
Í vikunni byrjaði Izabela M. Dziubinska hjá okkur í
vinnustaðanámi. Hún stundar nám við VMA en verður í
starfsnámi hjá okkur á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum
frá 8:00 - 12:00. Izabela verður aðallega á Regnboga
undir handleiðslu Heiðdísar. Við bjóðum hana hjartanlega
velkomna til okkar á Pálmholt.
|
Izabela |
17. jan.
Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á
samstarfsáætlun leik- og grunnskóla fyrir vorönnina og
eru foreldrar elstu barnanna hvattir til að kynna sér
þær.
Sjá hér
13. jan.
Búið er að uppfæra foreldrahandbók leikskólans.
Sjá hér
13. jan.
Búið er að uppfæra viðbragðsáætlun leikskólans.
Sjá hér
12. jan.
Tilkynning frá skóladeild til foreldra í leikskólum á
Akureyri
Á hverju ári
berast skóladeild umsóknir þar sem foreldrar óska eftir
að flytja börn sín milli leikskóla innan bæjarins. Að
því tilefni vill skóladeild benda á eftirfarandi:
Aðalinnritun í leikskóla
fer fram í apríl / maí ár hvert. Því er mikilvægt að
allar beiðnir um flutning hafi borist skóladeild
Akureyrar fyrir 30. mars ár hvert. Ef umsóknir berast
eftir þann tíma er ekki hægt að tryggja að flutningur
geti átt sér stað fyrir væntanlegt skólaár.
12. jan. Í
dag kvöddum við Hönnu með virktum en hún hætti hjá okkur
um áramótin. Krakkarnir gáfu henni risa Stubbaknús að
skilnaði.
11. jan.
Sumarlokanir leikskóla í Akureyrarbæ
Skólanefnd
samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 9. janúar
2012:
Skólanefnd
samþykkir að sumarlokun leikskóla 2012 verði í tveimur
tímabilum. Fyrra tímabilið verður frá 25. júní til 20.
júlí og seinna tímabilið verður frá 9. júlí til 3.
ágúst. Skólanefnd samþykkir að þetta fyrirkomulag verði
sett upp til þriggja ára þar sem leikskólum er raðað
niður á tímabilin. Þessi niðurstaða skólanefndar tekur
mið af umsögnum sem bárust frá starfsmönnum leikskóla og
foreldraráðum auk þess sem horft var til niðurstaðna
foreldrakönnunar frá vori 2011.
Niðurröðun til næstu þriggja sumra má skoða
hér
6. jan. Matseðlar til næstu
tveggja vikna eru komnir á heimasíðuna. Þó svo að búið sé að
samræma matseðla í leik- og grunnskólum þá hafa matráðar
áfram svolítið val um hvaða uppskrift þeir velja t.d. þegar
það er ofnbakaður fiskur eða hakkbollur og þar af leiðandi
er ekki alltaf verið að bjóða upp á sama réttinn alls staðar
þó svo að grunnhráefnið sé það sama.
Sjá hér
6. jan. Námskrár deilda fyrir
janúarmánuð eru komnar á heimasíðuna.
Máni
Regnbogi
Sól
6. jan.
Fundargerð frá fundi foreldraráðs frá 21. nóv. s.l. er
komin á heimasíðuna.
3. jan. Þær
starfsmannabreytingar verða nú um áramótin að Hanna hættir
hjá okkur og snýr sér alfarið að framhaldsnámi í
sérkennslufræðum við HA. Í hennar starf kemur annar
grunnskólakennari, Ingibjörg María Aadnegard. Hún verður í
75% starfi á Sólinni. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í
starfsmannahópinn um leið og við kveðjum Hönnu með söknuði
og velfarnaðaróskum.
|
Ingibjörg
María |
30. des.
Frá 2. janúar 2012 eru
matseðlar í öllum leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar
samræmdir. Gerðir hafa verið matseðlar sem rúlla á sjö vikna
fresti og hafa næringarfræðingar og aðrir sérfræðingar komið
að gerð þeirra til að tryggja að næringarefni séu við hæfi.
Innan skamms mun verða hægt að skoða næringargildi við
hverja hádegisverðarmáltíð. Hér má skoða alla matseðlana,
uppskriftirnar og sýnishorn af næringarútreikningi
http://akmennt.is/matur

23. des.
Við óskum nemendum
okkar, foreldrum, systkinum, öfum
og ömmum ásamt öllum öðrum velunnurum
Pálmholts gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári,
bæði í leik og starfi. Kærar þakkir fyrir ánægjulegt
samstarf
á árinu sem er að líða og við hlökkum til áframhaldandi
samveru og
samvinnu á árinu
2012.
23. des.
Matseðill fyrir næstu
tvær vikur er kominn á heimasíðuna. Vakin er athygli á
samræmdum matseðlum fyrir alla leik- og grunnskóla
Akureyrarbæjar sem taka gildi frá næstu áramótum.
22. des.
|
Til að ganga úr skugga um að búið væri að losa
pappír á þeim stöðum þar sem allt var yfirfullt í
gær fóru aðstoðarmenn slökkviliðsins aftur á stúfana
í dag. Eftir ferðina var hægt að merkja við „í lagi“
alls staðar og aðstoðarmennirnir sáttir. |
 |
21. des.
|
Í dag fóru tveir aðstoðarmenn
slökkviliðsins úr elsta árgangi í eftirlitsferð um
skólann ásamt Nunnu. Allur neyðarbúnaður var í góðu
lagi og aðgengi að útgönguleiðum sömuleiðis. Þó var
gerð athugasemd við pappírssöfnun á þremur stöðum og
því ákveðið að farin yrði önnur eftirlitsferð á
morgun til að ganga úr skugga um að allt yrði í
sómanum fyrir jólin. |
 |
Tilkynning til allra
leikskóla Akureyrarbæjar:
Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar hefur
ákveðið að fresta ákvörðun um fyrirhugaðar
breytingar á morgunverði barna á leikskólum
bæjarins. Fyrirhuguðum fundi um málið sem halda átti
í Brekkuskóla í kvöld, þriðjudagskvöldið 20.
desember, er því hér með aflýst.
Auglýsing frá skóladeild til
foreldra.
Breyting á morgunverði í
leikskólum - kynningarfundur
Boðað er til
kynningarfundar með foreldrum barna í leikskólum, í sal
Brekkuskóla þriðjudaginn 20. desember kl. 20.00.
Fundarefni er fyrirhugaðar breytingar á morgunverði í
leikskólum Akureyrarbæjar.
Á fundinum verða kynntar
fyrirhugaðar breytingar og ástæður þeirra. Á eftir
kynningunni munu Eríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri,
Preben Jón Pétursson varaformaður skólanefndar, Gunnar
Gíslason fræðslustjóri og Hrafnhildur Sigurðardóttir
leikskólafulltrúi, sitja fyrir svörum.
16. des. Jólaball Pálmholts var
haldið í dag og fór að vonum vel fram eins og alltaf.
Jólasveinarnir Kjötkrókur og Hurðaskellir mættu galvaskir og
sá fyrrnefndi með nýreykt hangilæri sem ilmaði dásamlega en
sá síðarnefndi var óvenju prúður en gat þó ekki setið á sér
og skellti að minnsta kosti einni hurð. Allir skemmtu sér
vel og eftir dans og söng var boðið upp á nýbakaðar smákökur
úr eldhúsinu. Aðstandendur fá kærar þakkir fyrir ánægjulega
samverustund.
16. des. Matseðill mæstu viku
er kominn á síðuna. Skoðið
hér
12. des.
Hér má skoða niðurstöður úr könnun sem lögð var fyrir
foreldra leikskólabarna síðast liðið vor.
12. des. Hér má skoða
ákvarðanir skólanefndar um breytta
gjaldskrá leikskóla og breytingar á
matseðlum
leikskólanna.
12. des.
Matseðill vikunnar er
kominn á sinn stað.
2. des. Jólaföndurdagurinn
heppnaðist ljómandi vel og voru foreldrar sérdeilis duglegir
að mæta og eiga góða stund með sínu barni. Ekki spillti
fyrir að börnin buðu foreldrum sínum á kaffihúsið
Regnboga þar sem jólatónlist ómaði og allir fengu
eitthvað gott að maula. Aðstandendur fá kærar þakkir fyrir
samveruna. Myndir verða settar á sameiginlega myndasíðu
heimasíðunnar en munu líka rúlla í starfrænu römmunum í
fataherbergjum deilda en þeir hafa vakið verðskuldaða
athygli bæði barna og foreldra.
2. des. Matseðill næstu viku er
kominn á sinn stað. Sjá hér
28. nóv. Föstudaginn 2.
desember verður hinn árlegi jólaföndurdagur á Pálmholti en
þá er foreldrum boðið að koma og föndra auðvelt jólaföndur
með sínum börnum og skera út í laufabrauð. Hægt er að velja
um að koma fyrir eða eftir hádegi og hanga skráningarlistar
uppi í fataherbergjum deilda.
28. nóv. Í gær var fyrsti
sunnudagur í aðventu og af því tilefni komu allir saman í
Skýjaborg í morgun þar sem kveikt var á fyrsta
aðventukertinu og sungin jólalög.
28. nóv. Í síðustu viku var
haldinn barnafundur í árgangi 2007. Þetta er annar fundurinn
sem haldinn er með stuttu millibili og greinilegar framfarir
hjá börnunum að tjá sig fyrir framan félagana.
Umræðuefni fundarins var Holtið og viðfangsefni þar.
28. nóv.
Hér má sjá matseðil
vikunnar
18. nóv. Matseðil næstu viku má
nálgast hér.
7. nóv. Á deildarsamkomu á
föstudaginn komu allir saman og fluttu söngva og þulur
hverjir fyrir aðra. Hér má sjá mynda af yngstu börnunum sem
sungu um dúkkuna hennar Dóru og skemmtu bæði sér og öðrum.
7. nóv. Í dag byrjuðu tveir
sænskir leikskólakennaranemar í vettvangsnámi hjá okkur. Þær
heita Jessica og Sofia og verða á Sól undir handleiðslu
Helen fram í byrjun desember.
|
 |
 |
|
Sofia |
Jessica |
4. nóv. Í gær voru haldnir
barnafundir í tveimur elstu árgöngunum. Umræðuefnið var
tengt þróunarverkefni leikskólans um hringrásir og siðfræði.
Börnin veltu því fyrir sér hvað þau ættu að festa á spýtu
sem þau ætla að grafa í jörðina. Gerist eitthvað í moldinni?
Næsta vor fæst vonandi botn í málið þegar spýturnar verða
grafnar upp. Börnin voru mjög dugleg að stíga í pontu. Sum
lögðu til málanna en fyrir aðra var æfingin að koma fram
fyrir hópinn aðalatriðið og sýndu börnin mikið hugrekki. Hér
má sjá nokkrar myndir.
|
 |
 |
 |
|
Sigmar |
Hólmfríður |
Hilma Dís |
28. okt.
Hér má skoða matseðil
næstu þriggja vikna.
28. okt. Í dag var haldin
brunaæfing og gekk hún mjög vel fyrir sig. Slökkvilið og
Eldvarnareftirlit mættu á staðinn og fylgdust með
framkvæmdinni.
27. okt.
Hér má sjá myndir frá
samsýningu elstu nemenda Pálmholts, Flúða, Lundarsels og
Lundarskóla um Búkolluverkefnið sem unnið var í tengslum við
þróunarverkefnið Leikum og lærum. Börnin sungu, fluttu
leikrit og sýndu verkefnavinnu og skráningar.
26. okt. Síðustu vikurnar hafa
elstu börnin verið að vinna markvisst með söguna Búkollu en
það er liður í þróunarverkefni leikskólanna þriggja,
Pálmholts, Flúða og Lundarsels, og Lundarskóla, Leikum og
lærum. Börnin hafa útbúið helli og sögusvið ásamt öllum
sögupersónum í Búkollu. Þau hafa hlustað á söguna, unnið með
orð úr sögunni og lært Búkollusöng svo eitthvað sé nefnt. Á
morgun verður haldin samsýning allra skólanna í Lundarskóla
og hafa nemendur verið að leggja lokahönd á undirbúninginn
með dyggum stuðningi kennaranna sinna, þeirra Helen og Nunnu.

Hér má sjá nokkur
barnanna með verkin sín. |

Hér eru Sjöfn og
Helen að velta fyrir sér hvaða texti passi við
myndaskráningu sem gerð var. |
25. okt. Snjórinn getur svo
sannarlega verið gleðigjafi og er stórkostlegur efniviður
sem hægt er að nota til að skapa hvaðeina sem mönnum dettur
í hug. Snjókarlar og kerlingar eru þó án efa vinsælasta
viðfangsefnið og í gær voru hendur látnar standa fram úr
ermum eins og sjá má á myndinni.
19. okt. Í dag kl. 16:15 verða
tveir fyrirlestrar í tengslum við þróunarverkefni
leikskólans um Hringrásir allan ársins hring. Bryndís
Indíana Stefánsdóttir verður með kynningu á útikennslu og
Jórunn Elídóttir fræðir okkur um starfendarannsóknir.
Áhugasömum foreldrum er velkomið að sitja fræðslufundinn sem
verður haldinn á Sól.
19. okt. Þessa viku eru
foreldraboð á öllum deildum og hefur hver árgangur sinn dag
til að bjóða pabba og mömmu upp á kaffisopa og
heimabakkelsi. Börnin í árgöngum 2007 og 2008 buðu upp á
dýrindis brauðbollur sem þau bökuðu, árgangur 2006 bakaði
gersnúða sem boðið verður upp á í dag og á morgun ætla
yngstu börnin í árgangi 2009 að bjóða foreldrum sínum að
koma og borða hafragraut með sér. Þetta eru alltaf mjög
skemmtilegir dagar og gaman hvað margir geta komið.
10. okt. Hér má skoða
samstarfsáætlun Pálmholts, Flúða, Lundarsels
og Lundarskóla um aðlögun og samstarf milli
skólastiganna.
10. okt. Matseðill til tveggja
vikna er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér.
7. okt. Í dag var haldin
deildarsamkoma á Mána þar sem allar deildir komu saman og
fluttu söngva og þulur. Þetta var hin besta skemmtum og
áætlað að deildir bjóði til sín til skiptis í hverjum
mánuði. Hér má sjá myndir frá flutningnum.
7. okt. Í vikunni fóru
fulltrúar starfsmanna í umhverfisnefnd á fund sem Landvernd
stóð fyrir og haldinn var á Stórutjörnum fyri skóla á grænni
grein og grænfánaskóla. Fundurinn var fróðlegur og
styrkjandi fyrir nefndina og vonandi á það eftir að skila
sér inn í starfið á Pálmholti.
4. okt. SMT-kennsluáætlanir
haustannar fyrir
Sól og
Mána eru
komar á heimasíðuna.
4. okt. Námskrár og
fréttapistlar deilda fyrir októbermánuð eru komin á
heimasíðuna.
Máni,
Regnbogi
og
Sól.
4. okt. Í gær fór Heiðdís með nokkur
af yngstu börnunum í fyrstu göngu- og kerruferð haustsins.
Ferðinni var heitið í Rauða krossinn með teppi sem skólinn
er hættur að nota og fengu þau miklar þakkir fyrir.
4. okt. Í gær fengum við
heimsókn frá fyrrverandi nemendum okkar sem nú eru komnir í
1. bekk í Lundarskóla. Þau komu ásamt Hrefnu kennaranum
sínum, léku sér, spjölluðu og sungu fyrir elstu nemendur á
Pálmholti. Þetta er liður í að tengja saman skólastigin og
auðvelda aðlögun á milli þeirra. Pálmholt, Flúðir, Lundarsel
og Lundarskóli vinna eftir samstarfsáætlun sem verður
aðgengileg á heimasíðunni innan skamms. Hér má sjá mynd af
okkar „gömlu“ nemendum með óskasteinana sem þeir útbjuggu í
leikskólanum í vor og tóku nú með sér heim.
26. sept. Matseðil leikskólans
til næstu tveggja vikna má skoða
hér.
23. sept. Á Aðalfundi
foreldrafélagsins sem haldinn var á Pálmholti í gær
var kosin ný stjórn í Foreldrafélag Pálmholts. Einnig var
kosið í Foreldraráð Pálmholts, fulltrúar foreldra í
Umhverfisnefnd skólans kosnir ásamt tengilið foreldra í
þróunarverkefninu Leikum og lærum. Drög að
starfsreglum Foreldraráðs voru lögð fram og þau samþykkt,
Einnig voru samþykktar lagabreytingar á lögum
Foreldrafélagsins.
Hér má skoða starfsreglur Foreldrafélagsins en nöfn nýrra fulltrúa í
stjórn og ráð ásamt lögum félagsins er að finna á tenglunum
Foreldraráð, Foreldrafélagið og Grænfáninn til vinstri á
síðunni. Tengiliðir foreldra við þróunarverkefnið Leikum
og lærum eru Dagný Reykjalín, Eyrún K. Gunnarsdóttir og
Kristín Hilmarsdóttir.
23. sept. Pálmholt hefur hlotið
tvo styrki úr Sprotasjóði, þróunarsjóði leik-, grunn og
framhaldsskóla. Annars vegar er um að ræða þróunarverkefni
um umhverfi og siðfræði sem við köllum Hringrásir
allan ársins hring. Verkefnið verður að mestu unnið
með tveimur elstu árgöngunum og eru leikskólakennararnir
Ólöf Pálmadóttir og Sigrún Ella Meldal
verkefnisstjórar. Hins vegar er um að ræða sameiginlegt
verkefni leikskólanna Pálmholts, Flúða og Lundarsels og
Lundarskóla sem við nefnum Leikum og lærum.
Markmið þess verkefnis er að þróa og efla samstarf milli
skólanna með það í huga að auðvelda elstu nemendum
leikskólans að hefja grunnskólagöngu. Einnig er markmið að
samræma aðferðir til lestrarkennslu í skólunum fjórum.
Tengiliður Pálmholts við verkefnið er Helen H. Ármannsdóttir
aðstoðarskólastjóri.
22. sept. Í dag klukkan 17:30
er aðalfundur foreldrafélagsins. Foreldrar eru hvattir til
að mæta vel og kynna sér öflugt starf félagsins. Einnig mun
foreldraráð leggja fram drög að starfsreglum og kosið verður
í nýtt ráð. Þá mun skólastjóri segja nokkur orð um innra
starf skólans og fleira.
22. sept. Fundargerðir
foreldraráðs frá maí og september eru komnar á heimasíðuna.
Sjá
hér og
hér
14. sept. Í dag var haldinn
kynningarfundur fyrir foreldra barna á Mána. Kennarar á
deildinni fóru yfir helstu áherslur í starfinu, kynntu
kennsluefni og starfshætti deildarinnar ásamt því að svara
fyrirspurnum. Á föstudag verður samskonar kynningarfundur
fyrir foreldra á Sól en Regnbogi kynnti starfið sitt fyrir
foreldrum á aðlögunardögunum. Hér má sjá nokkrar myndir frá
fundinum á Mána.
9.sept. Í dag fengum við
skemmtilega heimsókn. Brynja og Lára Sóley úr
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands komu til okkar með kveðju frá
Maximús Músíkús. Börnin voru að sjálfsögðu til fyrirmyndar.
7.sept.Í sumar höfum við verið
dugleg að fylgjast með matjurtagarðinum okkar og loksins var
komin tími til að taka um grænmetið. Allir skemmtu sér hið
besta þó svo vindurinn og rigningin hefði aðeins verið að
stríða okkur.
Fleiri myndir væntanlegar á
sameiginlega myndasíðu.
6.sept. Í dag og í gær höfum
við haft sænskan gest frá vinabænum okkar í Västerås. Hún
heitir Ingela Viskell Rasa og vinnur sem ráðgjafi í
leikskólum þar sem lögð er áhersla á stærðfræði og málörvun.
Ingela hefur fylgt Helen í starfi á Sól en líka sagt okkur
frá sínu starfi.
|
 |
|
Hér er mynd af Ingelu
með gjafir sem hún færði skólanum. |
2. sept. Búið er að setja inn
myndir af nýja starfsfólkinu á tengilinn starfsfólk.
2. sept. Í dag vann Berglind
Bergvinsdóttir sinn síðasta dag í bili á Pálmholti en hún heldur áfram í
námsleyfi og stundar meistaranám við HA ásamt Sigrúnu
Finnsdóttur. Berglind kemur aftur úr leyfi 1. janúar nk. en
Sigrún 1. júní 2012. Við óskum þeim velfarnaðar í náminu um
leið og við þökkum fyrir samstarfið í sumar.
2. sept. Í dag byrjaði nýr
starfsmaður hjá okkur í 100% starfi. Hún heitir Hafdís
Yurith Zabdid Ólason og verður að leysa af á öllum deildum
þannig að öll börnin og foreldrarnir eiga eftir að kynnast
henni. Við bjóðum Yurith hjartanlega velkomna til okkar. Nú
er fullskipað á Pálmholti bæði í starfsmanna- og
nemendahópnum :-)
2. sept. Í gær tókum við á móti
19 leikskólakennurum frá Finnlandi, Noregi, Danmörku,
Íslandi og Svíþjóð. Gestirnir fengu kynningu á starfi
skólans í máli og myndum og þáðu kaffi og hressingu. Börnin
vildu ekki láta sitt eftir liggja og sungu fyrir gestina,
útbjuggu fána landanna og færðu þeim óskasteina.
31. ág. Matseðil næstu vikna má
skoða hér
31. ág. Síðustu tvo dagana
höfum við haft góðan gest frá Västerås í heimsókn. Það er
Maria Malm sem er leikskólastjóri í einum af leikskólunum
sem starfsfólk Pálmholts heimsótti í júní. Á morgun e.h.
eigum við von á heimsókn frá rúmlega tuttugu
leikskólakennurum frá vinabæjum norðurlandanna en þeir sitja
allir samnorræna leikskólaráðstefnu í Hofi. Á mánudag
fáum við svo annan sænskan leikskólakennara til okkar. Hún
heitir Ingela og verður hjá okkur í tvo daga.
|
 |
 |
|
Maria Malm
leikskólastjóri í Västerås |
Maria færði
leikskólanum góðar gjafir, kennsluefni í stærðfræði
og hreyfingu. |
26. ág. Þessa vikuna höfum við
verið að kveðja starfsmenn samhliða því að taka á móti
nýjum börnum og nýju starfsfólki. Berglind Ólafsdóttir, Alfa
Dröfn Jóhannsdóttir og Baldvina Björk Jóhannsdóttir hættu
allar í vikunni og voru kvaddar með virktum. Þær eru allar
að fara í háskólanám og óskum við þeim velfarnaðar á nýjum
vettvangi. Þrír nýjir starfsmenn byrjuðu hjá okkur á
miðvikudaginn. Allt eru það nýútskrifaðir grunnskólakennarar
og bjóðum við þá hjartanlega velkomna í hópinn. Þær eru
Jóhanna Aðalbjörg Bergsdóttir sem verður á Sól, Þórdís Eva
Þórhallsdóttir verður á Regnboga og Sigrún Kristín
Jónsdóttir á Mána. Þær verða í 40 - 60% stöðum e.h.
19. ág. Matseðill fyrir næstu
viku er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
19. ág. Leikskólinn opnaði s.l.
þriðjudag eftir fjögurra vikna lokun og miklir
fagnaðarfundir hjá mörgum sem voru farnir að hlakka til að
koma aftur á Pálmholt. Yngstu börnin sem byrjuðu í sumar
hafa langflest komið keik aftur þó svo að sumum reynist það
erfiðara en öðrum. Í gær var haldinn kynningarfundur fyrir
nýja foreldra sem áætlað er að byrji með börn sín í aðlögun
22. ágúst. Tólf foreldrar frá átta börnum mættu en 11 börn
eiga að byrja aðlögun í næstu viku.
15. júlí. Leikskólinn lokar frá
18. júlí til og með 15. ágúst. Við opnum aftur með bros á
vör þriðjudaginn 16. ágúst og
hlökkum til að hitta bæði börn
og foreldra eftir ævintýri sumarleyfisins :-)
15. júlí. Í dag var síðasti
dagur margra af elstu börnunum sem hefja grunnskólagöngu
sína í ágúst. Af því tilefni tóku foreldrar barnanna sig til
og pöntuðu ísbíl á Pálmholt við mikla hrifningu barnanna.
Myndir af herlegheitunum má skoða á myndasíðu leikskólans.
11.júlí. Í gær skein sólin
glatt og voru börnin því mestmegnis úti. Kl 15:00 var hitinn
orðinn 22°°C og því höfðum við auka sulludag.

Hér eru fleiri
myndir frá góðum degi.
1. júlí.
Hér má skoða matseðil
leikskólans fyrir næstu tvær vikur og fyrstu viku eftir
lokun.
1.júlí. Í dag var íþróttadagur
hjá okkur. Börnin gerður hinar ýmsu æfingar úti og skemmtu
sér konunglega.

Fleiri myndir má finna
hér
29. júní. Skóladagatal
Pálmholts fyrir skólaárið 2011 - 2012 má
skoða hér
29. júní. Glóðvolgt eintak af
umhverfisfréttablaðinu Blóminu sem Pálmholt gefur út er
komið á heimasíðuna og má skoða
hér
21. júní. Matseðillinn er
kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
20.júní. Í dag settum við niður hinar ýmsu matjurtir í
garðinn okkar góða. Spennandi verður svo að fylgjast með í
sumar og smakka á lostætinu í haust.
Fleiri myndir má finna
hér

10. júní. Hér koma nokkrar
myndir frá afmælishátíð leikskólans sem tókst í alla staði
ágætlega og ekki spillti sólarglennan fyrir sem gladdi okkur
með nærveru sinni. Fleiri myndir verða settar á myndasíðu
eftir hvítasunnuhelgina.
9. júní. Á morgun verður mikið
um dýrðir á Pálmholti því þá höldum við upp á 61 árs afmæli
leikskólans, en afmælisdagurinn er þann 11. júní. Fulltrúi á
vegum Landverndar mun koma kl. 10:40 og afhenda okkur
grænfánann í þriðja sinn fyrir umhverfisstarf. Að því búnu
verða elstu nemendur skólans útskrifaðir með formlegum hætti
og síðan verður slegið upp grillveislu þar sem foreldrum og
systkinum er boðið. Stjórn foreldrafélagsins ætlar ekki að
láta sitt eftir liggja og munu valinkunnir fulltrúar
foreldra stjórna leikjum. Að undanförnu hafa veðurguðirnir
ekki beinlínis verið að bjóða upp á kjöraðstæður til
útisamkomu en við vonum það besta og biðjum fólk að klæða
sig eftir veðri.
6. júní. Nú er sumarfólkið
okkar allt mætt til starfa. Berglind Bergvinsdóttir mætti
til starfa 1. júní og verður hjá okkur á Sól fram í ágúst en
þá heldur hún aftur í skóla fram að áramótum. Í dag komu svo
þrír unglingar til starfa, þau Emilíana (Emma), Sóley og
Ægir. Emma verður á Mána en Ægir og Sóley á Sól. Við bjóðum
þau öll velkomin á Pálmholt.
3. júní. Í dag settu börnin á
Sól og Mána niður kartöflur í nýja matjurtagarðinn okkar.
Hér má finna myndir af áhugasömum börnum. Það verður
spennandi að sjá hvað kemur upp úr kartöflubeðunum í haust.
Það var líka sulludagur í dag og börnin tóku til við sullið
eftir heimsóknina í matjurtagarðinn.
Hér eru myndir af því.
31. maí. Pálmholt sótti á
dögunum um styrk í Sprotasjóð, þróunarsjóð leik-, grunn- og
framhaldsskóla, til að þróa með enn markvissari hætti
umhverfisstarf skólans. Í gær fengum við að vita að styrkur
að upphæð 1.8 milljón fékkst úr sjóðnum. Unnið verður
sérstaklega með hringrásir í náttúrunni og nefnist verkefnið
Hringrásir allan ársins hring. Einnig sóttu
Pálmholt, Flúðir, Lundarsel og Lundarskóli um styrk í sama
sjóð með það í huga að efla samstarf leikskólanna þriggja og
Lundarskóla. Verkefnið nefnist Leikum og lærum saman.
Þar fékkst styrkur að upphæð 1.0 milljón. Bæði verkefnin
byrja næsta haust og afar ánægjulegt að fá styrki til að
sinna þeim.
31. maí Í dag fóru börnin á Mánadeild saman í
matjurtagarðinn til að undirbúa reitinn fyrir
kartöfluniðursetningu. Eins og sjá má á
myndunum tóku börnin virkan þátt í vinnunni.
27. maí.
Hér má skoða matseðla næstu tveggja vikna.
26.maí. Í gær var dagur elstu
barnanna og mikil gleði ríkjandi í hópnum enda fengu börnin
að velja matseðilinn í hádeginu og höfðu síðan leikskólann
út af fyrir sig milli fimm og sjö. Farið var í
fjársjóðsleit, flatbökur útbúnar, dansað, sungið og leikið
og að lokum voru pitsurnar snæddar af bestu lyst. Myndir má
sjá á myndasíðu Sólar.
26. maí. Í dag mætti Sigrún
Finnsdóttir aftur til starfa eftir námsleyfi frá s.l.
hausti. Hún verður fyrsta mánuðinn á Mána og síðan á Sólinni
fram að sumarlokun. Þá heldur hún aftur í námsleyfi til
næsta vors. Við bjóðum Sigrúnu velkomna til okkar.
19. maí. Mánudaginn 23. maí
byrja tveir sumarstarfsmenn hjá okkur. Það eru þær Heiðdís
Sesselja Guttormsdóttir og Rósa Ösp Traustadóttir. Við
bjóðum þær velkomnar til starfa.
19. maí. Í dag fóru tveir elstu
árgangarnir í sveitaferð fram í Kristnes. Það er alltaf jafn
gaman að fara í þessar ferðir sama hvort sólin skín eða
regnið vætir jörð og þá sem úti eru. Geiturnar voru ekki
lengur til staðar og því engin hætta á að „stungurnar“ kæmu
út úr götunum (hornin gegnum girðinguna) eins og ein orðaði
það svo skemmtilega. Myndir eru komnar á myndasíður deilda.
12. maí.
Hér má sjá matseðil
vikunnar og þeirra næstu.
Sveitaferð og heimsókn til
slökkviliðsins
Í dag, 11 maí, fóru börnin á Regnboga og Mánabörn í
árgangi 2007 í Sveitaferð að Kristnesi. Þann 19. maí munu
síðan árgangur 2006 frá Mána og Sólarbörn fara í sveitaferð.
Í morgun fór útskriftarárgangurinn í heimsókn á
slökkviliðsstöðina. Myndir eru komnar á síður deilda.
10. maí. Í dag kvöddum við Möllu en hún
heldur nú til annarra starfa. Við þökkum henni
kærlega fyrir ánægjulegt samstarf í vetur og óskum
henni alls hins besta í framtíðinni.

10. maí. Sumarafleysingin okkar, hún Baldvina
Björk Jóhannsdóttir, sem er flestum vel kunnug
byrjaði hjá okkur í gær. Hún hefur nú lokið tveimur
árum í leikskólakennarafræðum við Mvs. HÍ og mun
leysa starfsfólk af í orlofum sínum og mun því koma
við á öllum deildum í sumar. Við bjóðum Baldvinu
hjartanlega velkomna til starfa.
4. maí.
Foreldrafélagið bauð upp á stórkostlega
brúðusýningu úr smiðju Bernd Ogrodnik um Skessuna
Gilitrutt. Hér
má sjá nokkrar myndir frá sýningunni sem og agndofa
áhorfendum. Foreldrafélagið fær kærar þakkir fyrir
sýninguna.
2. maí. Auglýsing frá skólanefnd Akureyrarbæjar:
Viðurkenning skólanefndar fyrir framúrskarandi
skólastarf
Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega,
veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem
skarað hafa fram úr í skólastarfi
viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka
athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem
fyrir valinu verða til þess að halda áfram því
góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel
gera enn betur. Viðurkenning er einnig
staðfesting á að viðkomandi
skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því
sviði sem viðurkenning nær til.
29. ap.
Nú ættu allir foreldrar að hafa fengið senda
viðhorfskönnun í tölvupósti sem unnin er af miðstöð
skólaþróunar Háskólans á Akureyri að ósk
skóladeildar Akureyrarbæjar. Foreldrar eru eindregið
hvattir til að gefa sér tíma til að svara þar sem
góð svörun gefur heildstæðari mynd og nýtist til
umbóta í skólastarfinu.
26. ap.
Matseðillinn
fyrir næstu tvær vikur er kominn á heimasíðuna.
Starfsfólk Pálmholts óskar foreldrum, börnum og
velunnurum gleðilegra páska sem og sólríks,
viðburðaríks og gleðilegs sumars sem nú fer í hönd
samkvæmt almanakinu. Bestu þakkir fyrir frábært
samstarf í vetur.

20. ap. Framundan hjá okkur eru vorboð þar
sem hver hópastarfshópur ásamt umsjónarkennara býður
foreldrum barnanna að koma og þiggja veitingar og
skoða sýnishorn af viðfangsefnum vetrarstarfsins.
Vorboðin verða sem hér segir:
Máni: 3. maí: Spóahópur, 4. maí:
Ísbjarnarhópur, 5. maí: Pönduhópur og 6. maí:
Ugluhópur. Boðin hefjast kl. 9:30 og standa í
klukkustund.
Regnbogi: 2. maí: Rauði hópur og 3. maí: Guli
hópur. Boðin hefjast kl. 9:30 og standa í
klukkustund.
Sól:
2. maí: Regnbogahópur, 4. maí: Stjörnuhópur og 6.
maí Ljónahópur. Boðin hefjast kl. 10:00 og standa í
klukkustund.
20. ap. Aprílmánuður hefur nánast flogið frá
okkur og nú er bæði sumarið og páskarnir framundan.
Margt skemmtilegt hefur gerst í mánuðinum og eru
foreldrar hvattir til að skoða myndir á myndasíðum
deilda sem og úr hópastarfi. Innritun nýnema stendur
nú yfir og gengur hún vel og flestir búnir að
staðfesta pláss. Við munum halda áfram að þróa svo
kallaða þátttökuaðlögun en aðlögun mun fara fram 30.
maí og svo að lokinni sumarlokun þann 22. ágúst.
Aðlögun milli deilda fer fram í vikunni á undan
aðlögun nýju barnanna.
4. ap. Hér má sjá
námskrár aprílmánaðar og fréttapistla frá deildum:
Máni,
Regnbogi og
Sól. 4. ap.
Matseðill
fram til páska er kominn á heimasíðuna.
28. mars.
Fundargerðir frá fundum foreldraráðs Pálmholts eru
komnar á heimasíðuna. Fundargerðirnar eru frá
27. okt. 2010,
10. nóv. 2010 og
23. mars 2011. 28.
mars.
Matseðill
vikunnar er kominn á heimasíðuna.
25. mars.
Starfsfólkið á Pálmholt tók þátt í vinnustaðakeppni
í Lífshlaupinu sem ÍSÍ stóð fyrir í febrúarmánuði og
var þátttaka og iðkun með miklum ágætum. Starfsmenn
stunduðu ýmis konar líkamsrækt af kappi;
gönguferðir, hlaup, alls kyns tíma í ræktinni,
krullu, þjóðdansa, samkvæmisdansa, sund og skíði svo
eitthvað sé nefnt. Árangurinn lét ekki á sér standa
en Pálmholt lenti í 1. sæti í flokki vinnustaða með
10 - 29 starfsmenn. Hér má sjá mynd af stoltum
vinningshöfum.
|
 |
23. mars.
Síðustu daga hafa börnin á Pálmholti verið að færa
foreldrum sínum spjöld til að hengja á
baksýnisspegla bílanna. Spjöldin eiga að minna
foreldra á að drepa á bílunum þegar þeir eru ekki í
akstri og draga þar með úr mengun bæði í umhverfi
leikskólans sem og annar staðar. Á Pálmholti viljum
við leggja okkar að mörkum í þágu umhverfisins og
þar skipta loftgæði miklu máli. Á heimasíðu Sambands
íslenskra sveitafélaga má lesa eftirfarandi um
loftgæði í nærumhverfi: „Gott andrúmsloft er með
mikilvægustu lífsgæðum enda erfitt að vera án þess
nema í mjög stuttan tíma. Í heild séð eru loftgæðin
á Íslandi mjög góð, en í þéttbýli, sérstaklega í
Reykjavík hefur við vissar aðstæður myndast
óviðunandi ástand. Meginuppspretta loftmengunar er
umferð farartækja, en uppblástur frá opnum svæðum er
talsverður þáttur í myndun svifryks. Svifryk og
köfnunarefnisdíoxíð úr bruna eldsneytis eru helstu
loftmengunarefni.“
23. mars.
S.l. mánudag var síðasti vinnudagur Halla hjá okkur
á Pálmholti. Hann var kvaddur með söng og fallegum
myndum sem börnin höfðu teiknað. Við þökkum Halla
kærlega fyrir góð kynni og samstarf þá níu mánuði
sem hann var hjá okkur og óskum honum alls hins
besta í framtíðinni.
16. mars. Þannig fór með fulltrúana góðu frá
Landvernd, þau Orra Pál og Gerði, að þau komust á
endanum til okkar í gær og héldu fund með þeim
fulltrúum í umhverfisnefnd sem voru til staðar kl.
15:00. Þetta var fjörlegur úttektarfundur þar sem
nemendur skólans í umhverfisnefnd stóðu sig með
prýði og svöruðu spurningum af miklu öryggi. Starfið
okkar fékk góða umsögn og einnig fengum við góða
handleiðslu og hugmyndir að áframhaldandi þróun
grænfánaverkefnisins. Hér má sjá nokkrar myndir frá
fundinum.
15. mars.
Matseðil næstu tveggja vikna má skoða
hér
15. mars.
Þar sem flugsamgöngur hafa legið niðri í morgun
frestast úttektin frá Landvernd til föstudagsins 18.
mars.
14. Mars.
Á morgun eigum við von á fulltrúum frá Landvernd,
þeim Gerði og Orra Páli. Þau munu taka út
umhverfisstarfið hjá okkur í þeim tilgangi að meta
hvort við uppfyllum þær kröfur sem gerðar eru til
skóla samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og liggja til
grundvallar því að Pálmholt fái
grænfánaviðurkenninguna til næstu tveggja ára. Strax
í fyrramálið mun umhverfisnefnd Pálmholts, elstu
nemendur, kennarar, matráður, skólastjóri og
fulltrúi foreldra, hitta fulltrúana og síðan fer
úttektin fram.
9. mars. Alltaf er nú jafn
gaman í leikskólanum á öskudaginn og létu menn ekki smá hríð
aftra sér frá því að fara í grímubúningunum sínum um
nágrenni Pálmholts og syngja fyrir starfsfólk í verslunum og
fyrirtækjum. Þegar heim var komið var kötturinn sleginn úr
tunnunni en þar reyndist vera fullt af poppi sem börnin
gæddu sér á. Í hádeginu var boðið upp á pylsur með
öllu og setti Sólin upp pylsusjoppu af því tilefni. Þar var
pylsan seld á 110 krónur sem hlýtur að vera lægsta verðið á
landinu :-) Börnin á Regnboga heimsóttu bæði matráð og
skólastjóra og sungu fyrir þá við mikla hrifningu.
3. mars. Búið er að uppfæra
viðbragðsáætlun Pálmholts vegna inflúensu.
Sjá hér
1. mars. Matseðil næstu þriggja
vikna má skoða hér.
22. feb. Nú er Hafdís byrjuð á
PMT- grunnnámskeiði og mun hún sækja fjórar tveggja daga
lotur á vorönninni. Fyrsta lotan er búin en næstu lotur eru
2. og 3. mars, 4.og 5. apríl og 12. og 13. maí. Hafdís er
sjöundi starfsmaðurinn á Pálmholti sem sækir þessa
grunnmenntun í PMT og erum við að vonum stolt af því að geta
byggt svo vel undir þessa stoð sem agastefna SMT-
skólafærninnar er.
21. feb. Í dag mættu nemarnir okkar frá
Menntavísindasviði HÍ, þær Anna Steinunn og Eva Dís. Þær
verða hjá okkur næstu tvær vikurnar og eru nú að kynna sér
samskipti, samstarf og stjórnun ásamt náttúru, samfélagi og
listum í leikskóla. Anna Steinunn verður aðallega á Regnboga
og Eva Dís á Sól. Þetta er síðasta önnin þeirra í
leikskólakennaranáminu og útskrifast þær sem
leikskólakennarar í vor. Við bjóðum þær velkomnar til okkar
á Pálmholt. Myndir af þeim stöllum eru undir
starfamannatenglinum.
17. feb. Í gær sendi Pálmholt
Landvernd skýrslu um umhverfisstarfið hér á Pálmholti s.l.
tvö ár ásamt nýrri umsókn um grænfánann til næstu tveggja
ára. Það er ekki sjálfgefið að skólar fái endurnýjun á
umhverfisviðurkenningunni sem grænfáninn felur í sér en við
leyfum okkur að vera bjartsýn þar sem mikil gróska hefur
verið í umhverfismennt þennan tíma.
Hér má lesa skýrsluna en Sigrún Ella Meldal á heiðurinn
af samantektinni og fær bestu þakkir fyrir vandaða vinnu.
Prentuð voru út tvö eintök til að hafa í forstofum og geta
foreldrar því einnig skoðað skýrsluna þar.
| Hér má sjá stolta
umhverfisnefnd Pálmholts hampa skýrslunni. |
 |
17. feb. Í dag buðu börnin
mæðrum sínum í kaffi í tilefni af væntanlegum konudegi.
Börnin höfðu bakað gómsætar gulrótarbollur sem runnu
ljúflega niður með osti og heimagerðu marmelaði. Síðan tóku
við ýmis viðfangsefni á deildum. Á Sól spruttu fram litrík
lófablóm í gluggum, á Regnboga var teiknað eftir höndum og á
Mána teiknuðu mæður og börn sjálfsmyndir. Drengirnir á Sól
tóku sig til og sungu hraustlega fyrir stúlkurnar á
deildinni en þær höfðu gert slíkt hið sama fyrir þá á
Bóndadaginn. Hér má sjá nokkrar myndir frá stundinni en
fleiri eru væntanlegar á myndasíðum deilda.
14. feb.
Matseðill næstu tveggja
vikna er kominn á síðuna.
14. feb. Í síðustu viku var bryddað upp á sérstakri
hrósviku meðal starfsmanna á Pálmholti. Starfsmenn leituðust
við að hrósa hver öðrum markvisst í anda SMT- skólafærninnar
í þeim tilgangi að verða enn færari í hvatningu og nákvæmu
hrósi í garð barnanna. Það kom glöggt í ljós að það er ekki
bara börnunum sem þykir gott að fá uppbyggilegt hrós og
stundum gleymist að setja orð á það sem vel er gert og litið
á það sem sjálfsagðan hlut. Verum minnug þess að hrós
styrkir okkur öll og hvetur til góðra verka.
11. feb.
Ársskýrsla Pálmholts fyrir skólaárið 2009 - 2010 er
komin á heimasíðuna. Þar má finna ýmsar gagnlegar og
fróðlegar upplýsingar um skólastarfið. Nú er unnið að
breytingum á uppsetningu næstu ársskýrslu þannig að innihald
hennar gagnist sem best í mati á skólastarfi. Trausti
Þorsteinsson hjá Miðstöð skólaþróunar HA hefur unnið að
endurbótunum. Áætlað er að ljúka ársskýrslu fyrir skólaárið
2010 - 2011 n.k. sumar.
9. feb. Að undanförnu hafa kennarar verið duglegir að
setja myndir á myndasíður deilda og eru foreldrar hvattir
til að skoða þær. Þar má m.a. sjá endurvinnsluverkin, myndir
úr fyrsta danstímanum, Búkolluverkefni Mána og ferð á
Holtið.
9. feb. S.l. föstudag hófst
danskennsla á Pálmholti. Foreldrafélagið kostar kennsluna
sem verður í fjögur skipti, á föstudögum, og sér Eva
Reykjalín um kennsluna.
|
Dagur leikskólans
Þann 6. febrúar er Dagur leikskólans og verður hann
haldinn hátíðlegur um land allt. Á Akureyri mun verða sett
upp sýning á Amtsbóka- og Héraðsskjalasafninu. Þar verður
m.a. hægt að skoða ýmis heimagerð námsgögn sem unnin hafa
verið í leikskólum bæjarins. Sýningin mun standa allan
febrúarmánuð. Í Pennanum Eymundsson verða sett upp listaverk
eftir foreldra og nemendur á Pálmholti og er yfirskriftin
"Sjálfsmynd úr endurnýtanlegum efnivið". Sú sýning verður
sett upp 3. febrúar og mun standa í einhverja daga. Þessu
til viðbótar tekur Pálmholt þátt í stuttmyndasamkeppni á
vegum Félags leikskólakennara og Félags Stjórnenda í
leikskólum. |
Innritun í
leikskóla fyrir næsta skólaár.
Foreldrum sem óska eftir leikskólavist fyrir börn sín á
komandi skólaári er bent á að umsóknir um leikskóla
þurfa að berast skóladeild fyrir 31. mars n.k.
Hægt er að sækja um í rafrænu formi á heimasíðu
skóladeildar
http://skoladeild.akureyri.is/
Fyrstu innritunarbréfin verða send út í
aprílmánuði og gert er ráð fyrir að aðlögun barna geti í
einhverjum tilvikum hafist í maí mánuði. Stefnt er að
því að allri aðlögun verði lokið í september.
Tímasetning aðlögunar tekur mið af því hvenær 6 ára börn
leikskólans hætta vegna grunnskólagöngu. Undanfarin ár
hefur þróunin verið sú að mikill meirihluti 6 ára barna
dvelur í leikskólanum fram að sumarlokun eða fram að
grunnskólabyrjun.
3. feb. Í dag var sýningin „Sjálfsmynd
úr endurnýtanlegum efnivið“ sett upp í gluggum Pennans
Eymundsson. Sýningin er samvinnuverkefni foreldra og barna á
Pálmholti og sett upp í tengslum við Dag leikskólans. Á
sýningunni gefur að líta einstaklega skemmtileg verk þar sem
hugmyndaauðgi og sköpunarhæfni hefur sannarlega fengið að
njóta sín. Foreldrar fá hjartans þakkir fyrir að leggja
hugmyndinni lið og „líf“. Sýningin mun standa fram til 15.
febrúar.
31. jan. Matseðill fyrir næstu
tvær vikur er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
31. jan. Námskrár deilda fyrir febrúarmánuð eru komnar á
heimasíðuna.
Máni.
Regnbogi.
Sól
24. jan. Matseðillinn fyrir
þessa viku er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
20. jan. Samstarf leikskólanna þriggja á efri brekkunni
og Lundarskóla er sífellt að styrkjast og á þessari
önn munum við fá að sjá enn meira af nemendum úr 6. bekk sem
ætla að koma nokkrum sinnum á önninni og lesa fyrir börnin
eins og þau gerðu í tvígang á haustönninni. Einnig munu
samskipti 6. bekkinga og elstu nemenda leikskólanna verða
efld.
Hér má sjá samstarfsáætlun skólanna fyrir vorönnina.
20. jan. Við höldum ótrauð áfram með SMT- skólafærnina
okkar og erum nú búin að gera kennsluáætlun fyrir vorönnina.
Á Regnboga er verið að byrja að leggja inn fyrstu reglurnar
en á Sól og Mána er haldið áfram að rifja upp reglur og
viðhalda jákvæðum aga ásamt því að bæta við lausnaleit síðar
á önninni. Allt gengur þetta ljómandi vel og hefur góð áhrif
inn í skólasamfélagið. Hér má sjá kennsluáætlanir vorannar:
Máni
Regnbogi
Sól
17. jan. Matseðil vikunnar má skoða
hér.
7. jan.
Á Akureyri eru
foreldrar hvattir til að senda börn ekki í
skóla í dag vegna óveðurs og ófærðar
um götur bæjarins.
Í vinnureglum vegna óveðurs segir m.a.:
Í öllum tilvikum þegar óveður og/eða ófærð
er birtist tilkynning í útvarpi þar sem
foreldrar eru hvattir til að halda börnum
sínum heima. Einnig eru þeir beðnir um
að hafa samband við skóla áður en lagt er
af stað til að tryggja að ekki sé komið
að læstum dyrum.
Þegar
svona stendur á þarf að tryggja að einhver
starfsmaður skólans mæti til að opna og
svara í síma. Helst ætti það að vera
skólastjóri, annars einhver sem hann felur
þetta hlutverk.Taka verður tillit til
aðstæðna á hverjum stað og ef staðan er
þannig að ekki er hægt að uppfylla kröfur um
öryggi verður að hafa lokað þangað til það
er hægt.
6. jan. Skólanefnd hefur
samþykkt sumarlokunartímabil leikskóla Akureyrar til næstu
þriggja sumra.
Sjá hér
3. jan. Nýtt umhverfisfréttabréf Pálmholts, Blómið,
er komið út.
Sjá hér
3. jan. Ný
gjaldskrá fyrir leikskóla Akureyrarbæjar frá 1. jan. 2011.
Sjá
hér
Breyting á gjaldskránni er sú
að dvalargjaldið hækkar um 10 % og fæðið um 5 %. Ef báðir
foreldrar eru án atvinnu greiða þeir lægra gjaldið að því
tilskyldu að skilað sé vottorði frá Vinnumálastofnun.
Námskrár deilda fyrir janúar 2011 eru
komnar á netið
Máni
Regnbogi
Sól
Við óskum öllum leikskólabörnum á
Pálmholti og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar
á nýju ári. Við þökkum kærlega fyrir einstaklega gott og
gefandi samstarf á liðnu ári og væntum þess að svo verði
áfram um ókomna framtíð. Hátíðarkveðjur frá starfsfólki
Pálmholts
23. des. Matseðill fyrir næstu
þrjár vikurnar er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
14. des. Skóladagatali
Pálmholts fyrir skólaárið 2010 - 2011 hefur verið breytt til
samræmis við óskir starfsmanna um breytta dagsetningu
skipulags- og námskeiðsdaga. Þetta er gert með samþykki
skólanefndar, foreldraráðs og stjórnar foreldrafélagsins.
Sjá hér
14. des. Nú eru jólasveinarnir
komnir til byggða og spenningur hjá sumum börnum orðinn svo
mikill að þau spretta upp fyrir allar aldir til að gá að
sveinka. Aðrir eru minna hrifnir og vilja sem minnst af
þessum rauðklæddu og skeggjuðu furðufuglum vita. Þetta
fengum við að að sjá og heyra á Jólaballinu okkar sem haldið
var í samvinnu við foreldrafélagið s.l. föstudag. Allt fór
vel fram og var þátttaka foreldra 100% og afar ánægjulegt að
sjá hvað foreldrar eru miklir þátttakendur í skemmtuninni.
10. des. Í morgun gerðust fimm
börn í elsta árgangi aðstoðarmenn slökkviliðsins. Þau fóru
ásamt skólastjóra um skólahúsið og athuguðu hvort
brunavarnir væru fullnægjandi og reyndist svo vera í öllum
rýmum. Hér má sjá mynd af hinum vösku aðstoðarmönnunum.
7. des. Í dag fengum við góða
gesti á Pálmholt en þar voru á ferðinni kvenfélagskonur úr
kvenfélaginu Hlíf, þær Birgit Schov formaður og Sigríður
Garðarsdóttir gjaldkeri. Eins og margir vita rak kvenfélagið
Hlíf barnaheimilið Pálmholt frá 1950 - 1971 og gáfu síðan
Akureyrarbæ hús, lóð og allan búnað árið 1972. Það er
því sterk taug milli leikskólans og kvenfélagsins og kom hún
berlega í ljós á 60 ára afmæli skólans í sumar þegar
kvenfélagið gaf skólanum veglegt gjafabréf. Ákveðið hefur
verið að verja upphæðinni til kaupa á þremur stafrænum
myndarömmum sem komið verður fyrir í fataherbergjum deilda.
Hér má sjá þær stöllur þar sem þær litu inn í dag og afhentu
gjöfina.
6. des. Litlu jól verða á Pálmholti n.k. föstudag með
jólamat og jólaballi. Að vanda eru foreldrar hjartanlega
velkomnir á jólaballið sem hefst stundvíslega kl. 14:00.
6. des. Matseðill fyrir næstu tvær vikurnar er kominn á
heimasíðuna.
Sjá hér
3. des. Búið er að setja inn
myndir frá föndurdeginum í gær. Myndirnar er að finna á
tenglinum Myndasíða.
29. nóv. Desembernámskrár deilda eru komnar á heimasíðu
undir tenglinum Mánaðarnámskrá.
29. nóv. Nú er aðventan gengin í garð og leikskólinn
kominn í jólabúning. Jólaföndur verður í leikskólanum n.k.
fimmtudag 2. des. og vonumst við eftir að sjá sem allra
flesta foreldra koma og eiga notalega stund með sínu/sínum
barni/börnum í leikskólanum. Skráningarblöð hanga upp í
fataherbergjum deilda.
29. nóv. Matseðill vikunnar er kominn á síðuna.
Sjá hér
22. nóv. Matseðill vikunnar er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
19. nóv. Í dag héldum við uppskeruhátíð eftir
ljóðavikuna sem haldin var í tilefni af Degi íslenskrar
tungu. Allir nemendur tóku virkan þátt í dagskránni og var
hver deild með ljóðaflutning. Að þessu sinni voru ljóðin öll
eftir íslenskar konur. Þá las skólastjóri upp ljóð og
sérstakur gestur var Hrefna Hjálmarsdóttir leikskólakennari
sem las upp ljóð eftir Davíð Stefánsson um X og Z auk
þess sem hún kenndi okkur lag við ljóð Vilborgar
Dagbjartsdóttur, Nú haustar að.
Stundin heppnaðist einstaklega vel og frábært að sjá og
heyra hvað ungir nemendur eru öflugir í tjáningu og
textaflutningi.
Hér má sjá nokkrar myndir.
Hér má heyra Hrefnu syngja lagið við ljóð Vilborgar.
19. nóv. Í gær fengum við góða
gesti í heimsókn þegar níu nemendur úr 6. bekk Lundarskóla
komu og lásu og léku við Pálmholtsbörnin. Undanfarin ár hafa
krakkar úr 6. bekk komið og lesið fyrir okkar nemendur en nú
bættist við leiktími sem veitti öllum mikla gleði. Það er
gaman að segja frá því að sumir gestanna voru hér í
leikskóla fyrir nokkrum árum og sérstaklega gaman að hitta
þá. Þann 9. desember kemur annar hópur 6. bekkinga og
endurtekur leikinn.
Hér má sjá nokkrar myndir.
15. nóv. Það má með sanni segja
að vetur konungur sé genginn í garð með frosti og snjó hér
norðan heiða. Foreldrar Sólarbarna máttu ganga í gegnum
húsið í morgun þar sem lóðin var illfær vegna fannfergis. Í
morgun var mokuð leið milli útganga og stærstu hengjur
fjarlægðar til að tryggja öryggi barnanna í útiverunni.
Börnin kunnu vel að meta allan þennan hvíta efnivið og nutu
þess að klofa snjóinn upp í mitti og fá sér smá smakk.
Þvílíkur ævintýraheimur.
15.
nóv.
Matseðill vikunnar er kominn á sinn stað.
Sjá hér
15.
nóv.
| Þá var
slökunardagur á Pálmholti og þótti börnunum ekki
amalegt að fara í fótabað og fá svo tásunudd í
kjölfarið. Hér má sjá dekurmyndir frá Mána. |
 |
 |
15.
nóv. Nemendur á Pálmholti eru mjög meðvitaðir um flokkun
og endurvinnslu enda hluti af daglegu starfi að flokka
matarafganga ýmist í moltutunnu eða hænufötu. Börnin
skiptast líka á að flokka endurvinnanlegt efni sem safnast
upp í eldhúsinu og hér má sjá myndir af slíkri flokkun.
|
 |
 |
1. nóv. Matseðill næstu tveggja vikna er kominn á
heimasíðuna. Sjá hér
29. okt. Námskrár deilda fyrir nóvember eru komnar á
heimasíðuna.
21. okt. Í vor gerði menntamálaráðuneytið könnun meðal
leikskólastjóra um framkvæmd nýrra laga um leikskóla no 90
frá 12. júní 2008. Áhugasamir geta skoðað
niðurstöðurnar á þessari slóð
http://www.menntamalaraduneyti.is/mat_uttektir/nr/3410
21. okt. Í þessari viku hafa nemendur og starfsfólk
boðið foreldrum í kaffi. Á Regnboga var boðið upp á
hafragraut og kaffisopa á miðvikudaginn en Máni og Sól buðu
upp á kaffi og brauðbollur með fjallagrösum sem börnin tíndu
á Holtinu. Bakstur fór fram í vikunni sem og marmelaðigerð
og nutu foreldrar afrakstursins í dag. Bestu þakkir til
foreldra fyrir góða mætingu.
18. okt. Matseðillinn er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
11.okt. Í dag komu tveir leikskólakennaranemar til okkar
sem verða hjá okkur þessa viku og svo aftur í tvær vikur á
vorönninni. Þetta eru þær Anna Steinunn Þengilsdóttir sem
margir kannast við frá síðasta ári og Eva Dís
Guðmundsdóttir. Anna Steinunn verður á Mána undir
handleiðslu Áslaugar en Eva Dís á Sól undir handleiðslu
Helen. Þær eru báðar á lokaári í leikskólakennaranáminu og
bjóðum við þær hjartanlega velkomnar.
4. okt. Nú er matseðill næstu tveggja vikna kominn á
heimasíðuna. Sjá hér
30. sept. Í dag var haldin brunaæfing í leikskólanum og
gekk hún mjög vel fyrir sig. Brunaviðvörunarkerfið var ræst
klukkan 9:00 og þustu allir út að sandkassa ýmist á inniskóm
eða sokkaleistum. Um það bil 30 sekúndur liðu frá kallinu
þar til allir voru komnir út og verður það að teljast mjög
gott. Eldvarnareftirlits- og slökkviliðsmenn mættu á staðinn
og fylgdust með.
Hér má sjá nokkrar myndir.
29. sept.
Þann 23. september hélt Foreldrafélag
Pálmholts aðalfund sinn. Mæting var nokkuð góð eða rúmlega
45%. Farið var yfir skýrslu stjórnar, reikninga félagsins,
kosið var í nýja stjórn og foreldraráð og einnig var kosinn
fulltrúi foreldra í umhverfisnefnd. Þá var farið yfir lög
félagsins, gjöld og önnur mál rædd.
Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum og
hér má sjá mynd af nýrri stjórn foreldrafélagsins.
24.
sept. Búið er að gera breytingar á SMT-kennsluáætlun
Mána og Regnboga og eru foreldrar beðnir um að kynna sér þær
á SMT-tenglinum.
23. sept. Eins og gestir hafa vafalítið tekið eftir er
verið að breyta útliti síðunnar í því augnamiði að gera
viðmótið aðgengilegra. Búið er að lagfæra heiti deilda eftir
skipulagsbreytingar innanhúss og ættu nú allir að rata á
sína síðu :-) Ekki er búið að tengja alla hnappa og eins á
eftir að gera fleiri breytingar sem vonandi verða til bóta.
22. sept. Það er alltaf sannkölluð hátíðarstemning á
Pálmholti þegar moltutunna er losuð og í dag var einmitt
einn slíkur. Nemendur og kennarar tóku höndum saman og
kepptust við að draga þessa líka fínu og næringarríku moltu
á snjóþotum. Moltan var ýmist sett hjá berjarunnunum,
rabarbaranum eða safnað í haug þar sem fyrirhugað er að koma
upp matjurtagarði. Vonir standa til að þessi áburður
auki til muna alla uppskera næsta sumar. Sumum þótti lyktin
svolítið skrýtin og jafnvel ekkert sérstök á meðan aðrir
töluðu um vellyktandi :-)
Hér má sjá nokkrar myndir.
22.
sept. Samstarf milli leik- og grunnskóla hefur verið að
aukast jafnt og þétt undanfarin ár enda orðin skylda
samkvæmt lögum. Leikskólarnir á efri brekkunni, þ.e.
Pálmholt, Flúðir og Lundarsel eru í samstarfi við
Lundarskóla. Samstarfið snýst að miklu leyti um að gera
skiptin milli skólastiga aðlaðandi fyrir nemendur og koma í
veg fyrir óþarfa spennu. Einnig hafa kennarar skólastiganna
verið að hittast, lesa fagbækur og miðla þekkingu og
reynslu, allt í því augnamiði að gera skólaskiptin samfelld.
Samstarfsskólarnir eru búnir að vinna áætlun fyrir skólaárið
2010 - 2011 og eru foreldrar elstu barnanna beðnir um að
kynna sér hana.
Sjá hér
22.
sept. Nú er búið að vinna upp áætlun fyrir kennslu og
upprifjun á SMT skólafærninni okkar fyrir haustönnina. Máni
og Sól hafa sitt hvora áætlunina en á Regnboga bíðum við með
innlögn þar til eftir áramótin. Foreldrar allra nýnema fengu
kynningu á agastefnu leikskólans í september. Eins og sjá má
í áætluninni er verið að draga úr hvatningu í formi umbunar
en þess í stað lögð mun meiri áhersla á félagslegu
hvatninguna. Hér má sjá áætlanirnar fyrir
Sól
og Mána.
20.
sept. Matseðill vikunnar er kominn á heimasíðuna.
Sjá hér
17.
sept. Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn
fimmtudaginn 23. september. Sjá nánar í auglýsingu frá
stjórn foreldrafélagsins.
Hér
13.
sept. Í dag komu Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
ásamt Hrafnhildi Sigurðardóttur leikskólafulltrúa í stutta
heimsókn. Með heimsókninni var bæjarstjóri að skoða
leikskólann og kynna sig fyrir starfsfólki og nemendum
skólans.
10.
sept. Í dag var sulludagur og skemmtu börnin sér
konunglega við alls kyns tilraunir og vatnsleiki í
veðurblíðunni.
10.
sept. Í dag fengum við heimsókn frá leikskólanum
Hulduheimum í Grafarvogi en sjö starfsmenn komu og kynntu
sér starfið okkar.
8.
sept. Í tilefni af Degi læsis, sem er í dag, var ákveðið
að efna til læsisviku á Pálmholti og minna þannig á
mikilvægi málefnisins. Tveir elstu árgangarnir heimsækja
Amtsbókasafnið í vikunni og í gær bökuðu nemendur stafabrauð
og gerði hvert barn sinn staf. Hápunktur vikunnar var svo í
dag þegar Heiðdís Norðfjörð rithöfundur með meiru heimsótti
okkur og las frumsamda sögu fyrir tvo elstu árgangana.
Guðrún Nunna var fengin til að koma og lesa fyrir þriggja
ára börnin á Mána og Hugrún las fyrir Regnbogabörnin. Í
hádeginu var svo snædd stafasúpa og stafabrauð þar sem mikil
umræða spannst gjarnan um bókstafi og hvernig þeir geta
myndað orð sem geta síðan orðið að sögum og ævintýrum.
3.
sept. Matseðill fyrir næstu tvær vikur er kominn á
heimasíðuna.
Sjá hér
3. sept.
Skóladeild og fjölskyldudeild Akureyrarbæjar munu í
haust standa fyrir PMT-námskeiði (Parent Management Training)
fyrir foreldra barna með ofvirkni og /eða athyglisbrest.
Miðað er við börn á aldrinum 5 - 10 ára. Sjá nánar í
meðfylgjandi auglýsingu.
Hér
31. ág. Námskrár
septembermánaðar og fréttabréf frá deildum eru komnar á
heimasíðuna. Sjá tengil hér til hægri.
31. ág. Skóladeild Akureyrarbæjar hefur gefið út
upplýsingabækling um alla leikskóla sem starfa innan
sveitarfélagsins. Þar má finna upplýsingar um hvern
leikskóla ásamt ýmsum hagnýtum upplýsingum.
Sjá hér
27. ág. Veðrið lék við okkur í dag og Sólarkennarar og
börn ákváðu að nýta sér blíðuna og færa starfsemina út undir
bert loft. Hér má sjá myndir frá samverustund og
hádegisverði.
27. ág. Í dag byrja þrír nýjir starfsmenn hjá okkur. Það
eru þær Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, Berglind Ólafsdóttir og
Málmfríður Sigurðardóttir. Berglind verður í tæplega 70%
starfi en Alfa Dröfn og Málmfríður í 100% stöðum. Við bjóðum
þær innilega velkomnar til starfa á Pálmholti.
27. ág. Í dag kveðjum við
Baldvinu sem heldur suður til áframhaldandi náms í
leikskólakennarafræðum. Berglind Bergvinsdóttir vinnur sinn
síðasta dag á þessu ári en hún og Sigrún Finnsdóttir fara í
níu mánaða leyfi til að stunda nám við HA. Við óskum þeim
öllum góðs gengis á menntabrautinni.
20. ág. Á mánudaginn, 23. ágúst
byrja fimm börn í aðlögun á Regnboga, öll fædd árið 2008.
Aðlögunin fer fram með þátttöku foreldra þannig að það
verður margt um manninn þessa daga meðan á aðlögun stendur.
Þann 9. ág. komu fimm börn í aðlögun á deildina og var þá
sama fyrirkomulag haft á og gekk það býsna vel. Í lok ágúst
hættir eitt barn á Mána og annað byrjar í aðlögun þar fyrsta
sept. Við hlökkum til að fá þessi nýju börn og að hefja
samstarf við alla þessa nýju foreldra.
20. ág. Nú er sumarstarfsfólkið
okkar að hverfa af vettvangi eitt af öðru. Í gær kvöddum við
Ólaf en Baldvina verður hjá okkur út næstu viku. Við þökkum
þeim kærlega fyrir samstarfið í sumar og óskum þeim góðs
gengis á nýjum vettvangi.
16. ág.
Matseðill vikunnar er
kominn á sinn stað. Sjá hér
16. ág.
Í dag byrjuðu tveir nýjir
starfsmenn hjá okkur. Guðný Lára Gunnarsdóttir
grunnskólakennari verður í 75% starfi á Sól og Lilja Björk
Jósepsdóttir tekur við af Þóreyju sem aðstoðarmatráður. Við
bjóðum þær hjartanlega velkomnar til starfa á Pálmholti.
Þessa dagana erum við iðin
við að kveðja fólk, í dag 13. ágúst kvöddum við hana Kittý
okkar með söknuði.
Hún heldur nú suður yfir heiðar og fer að vinna í
leikskólanum Ægisborg eftir 16 ára starf á Pálmholti.
  
Í dag 6. ágúst kvöddum við
hana Þóreyju okkar, hún heldur nú suður yfir heiðar til
nýrra ævintýra
 |